fbpx
Laugardagur 22.febrúar 2025

Þénaði 400 þúsund krónur á einni viku fyrir að selja fótamyndir – Svona fór hún að þessu

Ritstjórn Bleikt
Miðvikudaginn 29. janúar 2020 12:58

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Söngkonan og áhrifavaldurinn Desirée Mitchell ákvað að gera frekar áhugaverða félagslega tilraun og selja myndir af fótunum sínum á netinu. Á einni viku þénaði hún tæplega 400 þúsund krónur í skiptum fyrir fótamyndir. Hún segir frá þessu í myndbandi á YouTube sem hefur fengið yfir 500 þúsund áhorf.

„Í dag er nýja starf mitt að selja ókunnugum á netinu myndir af fótunum mínum,“ segir hún og hlær í myndbandinu.

https://www.instagram.com/p/B7tCYj_Jb8Q/

Hún útskýrir nánar ástæðuna fyrir því að henni datt þetta í hug.

„Á Instagram deili ég venjulegum myndum af mér og svona. Daglegur stíll minn inniheldur mikið af skóm sem eru opnir í tærnar. Án þess að reyna er ég með einskonar „fóta-aðdáendahóp.“ Aðdáendur sem fylgjast ekki með mér vegna tónlistarinnar eða YouTube, heldur fótanna. Ég er bókstaflega með aðdáendahóp fyrir fæturna mína,“ segir hún og sýnir skjáskot af tveimur Instagram-síðum sem eru tileinkaðir fótunum hennar.

Fætur hennar eiga marga aðdáendur.

Desirée veit að það eru menn með fótablæti sem borga fyrir svona myndir en hún fær reglulega skilaboð þar sem hún er spurð hvort hún selji fótamyndir. Þannig markhópurinn var þegar til staðar.

„Mér fannst það alltaf óhugnanlegt og skrýtið. En í dag ætlum við að prófa,“ segir Desirée á fyrsta degi tilraunarinnar og bætir við að henni langar að vita hvort þessi iðnaður sé arðbær.

https://www.instagram.com/p/B4rMbcgJa1r/

Desirée byrjar á því að svara einum aðdáanda hennar og segjast rukka hundrað dollara fyrir eina mynd, sem er um 12 þúsund krónur.

„Ég veit ekkert um fótamynda-iðnaðinn og ég veit ekki hversu mikið þetta kostar venjulega, en ég veit að fætur mínir eru þess virði,“ segir hún.

Hún sendir síðan nokkrum karlmönnum skilaboð sem hafa margsinnis skrifað við myndirnar hennar um hvað fæturnir hennar eru fallegir.

Eftir að hafa rætt við einn sérstakan áhugamann um fótamyndir þá breytir hún verðinu svo það eru tvær myndir í skiptum fyrir hundrað dollara. Að sögn mannsins með fótablætið er venjulega verðið fyrir fimm fótamyndir 25 dollarar eða 25 dollarar fyrir 1-2 mínútna langt myndband.

Þetta vatt upp á sig yfir vikuna og þú getur fylgst með ferlinu í myndbandinu hér að neðan. Hún endaði með því að selja myndir af fótunum sínum fyrir 3200 dollara, tæplega 400 þúsund krónur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Heitir þú Jóhann, Kristófer eða Guðrún? Þá gætir þú átt inni pening

Heitir þú Jóhann, Kristófer eða Guðrún? Þá gætir þú átt inni pening
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Þetta ætlar nýr meirihluti í borginni að gera

Þetta ætlar nýr meirihluti í borginni að gera
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Hafði ekki erindi sem erfiði eftir að mistókst að vinna bug á fýlusvipnum

Hafði ekki erindi sem erfiði eftir að mistókst að vinna bug á fýlusvipnum
Fókus
Fyrir 15 klukkutímum

Ragnhildur segir okkur ekki þurfa meiri skömm – „Aðra daga er allt í skrúfunni á síðustu stundu“

Ragnhildur segir okkur ekki þurfa meiri skömm – „Aðra daga er allt í skrúfunni á síðustu stundu“

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.