Breska fyrirsætan Iskra Lawrence, 29 ára, hefur vakið mikla athygli fyrir óléttumynd sem hún deildi nýlega á Instagram.
Á myndinni er hún í g-streng og svörtum íþróttatopp. Með myndinni skrifar hún.
„Yndislegu kúlurnar mínar, bæði fyrir framan og aftan. Sjö mánuðir hafa aldrei verið svona heitir.“
Iskra er með yfir 4,5 milljón fylgjendur á Instagram og vakti myndin mikla athygli, en það sem vakti mesta athygli var rassinn hennar. Aðdáendur hennar voru í sjokki að hún væri ekki með neina appelsínuhúð komin svona langt á leið.
https://www.instagram.com/p/B7bvX3hnSYG/
„Þú lítur ótrúlega vel út! Ertu til í að segja mér hvernig þú ert með ENGA appelsínuhúð?!! Ég hef verið með rosalega slæma appelsínuhúð síðan ég varð ólétt,“ skrifaði einn fylgjandi hennar.
Iskra svaraði konunni og benti á að góð lýsing skipti lykilmáli.
„Lýsingin líka elskan mín, útlit getur verið blekkjandi. Ég er klárlega með appelsínuhúð sem sést betur í öðruvísi lýsingu. Það er algjörlega náttúrulegt elskan mín,“ sagði Iskra.
Hún útskýrir síðan í öðru svari til fylgjanda að hún þurrburstar rassinn sinn og ber á hann rakakrem.
„Lýsingin er blekkjandi. En ég þurrbursta og ber á mig krem tvisvar á dag, alla daga,“ segir hún.