Lady Gaga er einhleyp á ný. Hún og Christian Carino hafa slitið trúlofun sinni. Fjölmiðlafulltrúi Lady Gaga staðfesti fréttirnar við People.
„Þetta gekk bara ekki. Sambönd enda stundum,“ segir heimildarmaður People og bætti við að parið hafi hætt „fyrir einhverju síðan,“ og það sé engin „löng og dramatísk saga.“
Fyrst fóru orðrómar á kreik um sambandslit þeirra þegar hún mætti ein á Grammy verðlaunahátíðina 10. febrúar síðastliðinn. En það var ekki einungis Christian sem vantaði á hátíðina, heldur einnig trúlofunarhring hennar. Það vakti einnig athygli að á Valentínusardaginn hafi Lady Gaga ekki deilt mynd af unnustanum heldur nýja húðflúrinu sínu sem hún fékk sér til heiðurs A Star Is Born.
https://www.instagram.com/p/Bt375OflK2f/?utm_source=ig_embed
Sjá einnig: Sannfærð um að Bradley Cooper og Lady Gaga séu yfir sig ástfangin
DV greindi frá því fyrir stuttu að netverjar eru margir hverjir klárir á því að Lady Gaga og meðleikari hennar í A Star Is Born séu ástfangin.