Fyrirsætan Amber Rose fer undir hnífinn aðeins sex vikum eftir að hún fæddi son sinn, Slash Electric.
„Ég er að fara að láta laga allan líkama minn eftir barnið,“ sagði fyrirsætan í myndbandi á Instagram.
Hún sagði hvað lýtalæknirinn ætlaði að gera.
„Hann ætlar að laga kjálkalínuna mína […] þannig hann ætlar að laga það og síðan bara sjúga alla barnafituna úr kviðnum mínum,“ segir hún og bætir við að hún sé „mjög spennt.“
https://www.instagram.com/p/B5YU70en_r_/
Viðbrögð við færslu Amber hafa verið mjög misjöfn. Sumir fagna henni fyrir að tala opinskátt um lýtaaðgerðir, meðan aðrir gagnrýna hana fyrir að fara ekki í ræktina eða leyfa líkama sínum að létta sig náttúrulega.
Flestir læknar mæla með því að konur bíði í allt að sex til níu mánuði eftir að fara í fitusog því „þú getur ekki lyft barninu í nokkrar vikur eftir fitusog“ samkvæmt ASAPS (American Society for Aesthetic Plastic Surgery).