fbpx
Þriðjudagur 16.júlí 2024

Sjáðu leikhúsið sem Kourtney Kardashian og Scott Disick byggðu fyrir börnin sín

Ritstjórn Bleikt
Föstudaginn 20. september 2019 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Raunveruleikastjörnurnar Kourtney Kardashian og Scott Disick hönnuðu og byggðu leikhús (e. playhouse) fyrir börnin sín. Já heilt hús þar sem börnin þeirra þrjú geta leikið sér. Þau eiga saman Mason, 10 ára, Penelope, 7 ára, og Reign, 4 ára.

Kourtney sýnir leikhúsið í nýju myndbandi fyrir Arcitectural Digest.

„Ég hef verið að tala um að búa til leikhús fyrir börnin síðan Mason var mjög ungur,“ sagði Kourtney.

Kourtney segist hafa eytt nokkrum árum í að skoða bloggsíður í leit að innblæstri fyrir hönnunina og að setja saman möppu með uppáhalds hugmyndum sínum.

„Ég gat ekki ákveðið mig,“ segir Kourtney og þá ákvað Scott, barnsfaðir hennar, að taka við keflinu.

„Níu árum síðar var Scott alveg: „Jæja ég tek núna yfir og ætla að byggja leikhús handa krökkunum,“ segir Kourtney.

Þau byggðu leikhúsið heima hjá Kourtney, en hún og Scott eru skilin. Þau fengu krakkana til að hjálpa sér að ákveða nokkur smáatriði.

Börnin þurfa að fylgja einni reglu þegar þau eru í leikhúsinu, en engin tækni er leyfð.

„Það eru engir iPads, símar, tölvur, leiktæki, sjónvörp – ekkert er leyft inni,“ segir Kourtney.

„Það er ástæðan fyrir því að við erum með margar bækur.“

Horfðu á Kourtney sýna leikhúsið í myndbandinu hér að neðan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Pálmi Þór lést af slysförum á Spáni

Pálmi Þór lést af slysförum á Spáni
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Morata að skrifa undir hjá enn einu stórliðinu

Morata að skrifa undir hjá enn einu stórliðinu
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Romano segir Valgeir hafa samið í Þýskalandi

Romano segir Valgeir hafa samið í Þýskalandi
Fókus
Fyrir 15 klukkutímum

„Hawk Tuah“ stelpan segir að karlmenn séu bara á höttunum eftir einu þegar þeir senda henni skilaboð

„Hawk Tuah“ stelpan segir að karlmenn séu bara á höttunum eftir einu þegar þeir senda henni skilaboð
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Sverrir sagður í skrýtinni stöðu – „Það hefur eitthvað súrnað, það er eitthvað í gangi“

Sverrir sagður í skrýtinni stöðu – „Það hefur eitthvað súrnað, það er eitthvað í gangi“
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Íslendingur fannst látinn á Spáni

Íslendingur fannst látinn á Spáni