Það eru 99 dagar til jóla. Flestir setja upp jólaskrautið þegar nær dregur jólum. En fyrir suma er biðin of löng og vilja helst setja upp jólaskrautið þegar fyrsta haustlaufið fellur.
Ef þú vilt setja bráðlega upp jólaskrautið, eða ert búin að því, þá eru vísindin með þér í liði. Sálgreinirinn Steve McKeown segir að fólk sem setur jólaskautið upp snemma sé hamingjusamara.
„Þó svo að það eru nokkrar einkennandi ástæður fyrir því að einhver myndi vilja setja upp jólaskraut snemma, þá er það algengast vegna nostalgíu, annaðhvort til að endurupplifa töfrana eða bæta upp vanrækslu úr fortíðinni“, segir Steve við Unilad.
„Í heimi sem er fullur af stressi og kvíða þá vill fólk hafa hluti í kringum sig sem það tengir við hamingju, og jólaskraut kallar fram sterkar tilfinningar úr barnæsku. Jólaskraut er einfaldlega akkeri eða leið að þessum yndislegu barnaminningum.“
Þá vitum við það. Ef að skreyta heimili þitt snemma gerir þig hamingjusama, þá er engin ástæða fyrir því að sleppa því!