fbpx
Sunnudagur 23.febrúar 2025

Amber Rose auglýsir Flat Tummy Tea fyrir óléttar konur: „Erum við að fokking djóka?“

Ritstjórn Bleikt
Fimmtudaginn 20. júní 2019 17:30

Jameela Jamill og Amber Rose.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eitt sem við vitum öll fyrir vissu, er að óléttar konur eiga ekki að vera með flatan maga.

Það olli því miklu fjaðrafoki þegar Amber Rose setti inn auglýsingu á Instagram fyrir Flat Tummy Tea. Fyrirtækið er þekkt fyrir að fá stjörnur eins og Kylie Jenner, Cardi B, Khloé og Kourtney Kardashian til að auglýsa vörurnar sínar.

Þó svo að engin gögn styðja að Flat Tummy Tea „hreinsar líkamann“ þá eru sennablöð í teinu og hafa þau hægðalosandi áhrif og þar af leiðandi getur talan á vigtinni lækkað vegna lækkandi vatnsþyngdar.

Leikkonan Jameela Jamil berst gegn Flat Tummy Tea og stjörnunum sem auglýsa teið með því að tala opinskátt um það á samfélagsmiðlum. Hún gagnrýndi nýlega Khloé Kardashian fyrir að auglýsa Flat Tummy Tea.

Nú hefur Jameela alveg fengið nóg. Fyrirsætan Amber Rose deildi mynd af sér með nýtt te frá Flat Tummy Tea sem er ætlað óléttum konum. Amber er sjálf ólétt.

Teið á að vera „lífrænt meðgöngute“ og á að hjálpa við „uppþembu“ og „meltingu.“

„FLAT TUMMY VÖRUR FYRIR… ÓLÉTTAR KONUR? Er þetta samþykkt af bandaríska lyfjaeftirlitinu [FDA]? Erum við… að fokking… grínast?“

Það var ekki aðeins Jameela sem tók til Twitter til að tjá reiði sína.

„Þessi fyrirtæki þéna á því að við hötum okkur! Jameela, takk fyrir að tjá þig um þetta og hversu heimskulegt og skemmandi þessar auglýsingar eru. Ég vildi óska þess að þú hefðir verið til staðar þegar ég var að alast upp og skammaðist mín fyrir líkama minn, en ég er svo glöð að litlu frænkur mínar og frændur geta horft upp til þín.“

„Eins og það sé ekki nægilega mikil pressa á ólétt fólk fyrir.“

„Ég ætla að ganga svo langt og halda því fram að ekkert te á jörðinni, ekkert nema fæðing, mun hjálpa einhverjum að fá flatan maga á meðgöngu.“

„Vá krónískur niðurgangur á meðan þú ert ólétt hljómar skelfilega“

Einn Twitter notandi ákvað að lesa sér almennilega til um Flat Tummy te á heimasíðu þeirra. Þar stendur skýrum stöfum að konur eiga ekki að nota vörurnar þeirra ef þú ert ólétt eða með barná brjósti. Það stendur á síðu sjálfrar vörunnar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 klukkutímum

Gervigreindin um ræður Áslaugar Örnu og Guðrúnar Hafsteins: Áslaug Arna höfðar til innvígðra – Guðrún höfðar til breiðari hóps kjósenda

Gervigreindin um ræður Áslaugar Örnu og Guðrúnar Hafsteins: Áslaug Arna höfðar til innvígðra – Guðrún höfðar til breiðari hóps kjósenda
Pressan
Fyrir 5 klukkutímum

Eru ofnskúffurnar skítugar? Svona er hægt að fá þær skínandi hreinar á einfaldan hátt

Eru ofnskúffurnar skítugar? Svona er hægt að fá þær skínandi hreinar á einfaldan hátt
Eyjan
Fyrir 6 klukkutímum

Guðrún Hafsteinsdóttir: Gangi Noregur í ESB þurfum við Íslendingar að íhuga okkar stöðu alvarlega

Guðrún Hafsteinsdóttir: Gangi Noregur í ESB þurfum við Íslendingar að íhuga okkar stöðu alvarlega
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Salah kveikir í City mönnum fyrir stórleikinn: Segir að Haaland lifi auðveldu lífi – ,,Þægilegt fyrir hann“

Salah kveikir í City mönnum fyrir stórleikinn: Segir að Haaland lifi auðveldu lífi – ,,Þægilegt fyrir hann“
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Viðurkennir að allt sé í rugli hjá Manchester United – ,,Staðan er mjög, mjög slæm“

Viðurkennir að allt sé í rugli hjá Manchester United – ,,Staðan er mjög, mjög slæm“
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Kom mörgum á óvart og ákvað að gerast klámstjarna: Móðir hans var steinhissa – ,,Hún fór að gráta“

Kom mörgum á óvart og ákvað að gerast klámstjarna: Móðir hans var steinhissa – ,,Hún fór að gráta“
Fókus
Fyrir 20 klukkutímum

Væb róa í Eurovision eftir glæsilegan sigur í Söngvakeppninni

Væb róa í Eurovision eftir glæsilegan sigur í Söngvakeppninni
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Duran missti hausinn og Ronaldo nánast ósýnilegur

Duran missti hausinn og Ronaldo nánast ósýnilegur

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.