Leitin að lífsförunautnum er oft þyrnum stráð og oft sér maður ekki gullfiskinn fyrir allri þorsktorfunni.
Fjöldi forrita býðst til að stytta okkur leitina, já, eða bara finna einhvern frambærilegan einstakling sem er í stíl við stofusófann fyrir Netflix og slökun. Þar er Tinder oft góður Akkilesarhæll og fólk keppist við að sópa ýmist til hægri eða vinstri. Við slíka hreingerningu má oft finna þekkta einstaklinga, enda þeir bara með sömu væntingar og vonir í þessu „snjall“-appi og við hin.
Á meðal þekktra einstaklinga sem birst hafa á snjallsímaskjánum hjá einhleypum heimildarmönnum DV eru tónlistarfólkið Þórunn Erna Clausen, Ásgeir Trausti, Daníel í Kaleo og Dj Dóra Júlía, leikararnir Gísli Rúnar Jónsson, Kjartan Guðjónsson og Þórir Sæmundsson, Dóra Björt Guðjónsdóttir borgarfulltrúi, Þorsteinn Stephensen, eigandi Herra Örlygur, Jóhannes Kristjánsson eftirherma og Selma Björnsdóttir, söngkona og leikstjóri.