Hólabrekkuskóli hélt glæsilega sumarhátíð í gær. Margt var um manninn og góð þátttaka foreldra og starfsmanna. Börnin skemmtu sér vel í hoppuköstulum, veltibíllinn var á staðnum og Doktor bæk fór yfirferð á reiðhjólum þeirra sem vildu. Ýmsir leikir og skemmtun voru í boði.
Lúðrasveit Árbæjar og Breiðholts marseraði með nemendum í upphaf hátíðarinnar.
„Sumarhátíðin tókst afar vel og er samstarfsverkefni starfsmanna skólans, foreldrafélags Hólabrekkuskóla og Álfheima frístundaheimilis,“ segir Sveinn Hjörtur Guðfinnsson sem situr í stjórn Foreldrafélags Hólabrekkuskóla. Hann tók einnig myndirnar.