Bandaríska leikkonana Amandla Stenberg greindi frá því á Instagram síðu sinni í vikunni að hún væri komin út úr skápnum sem samkynhneigð. Hún hafði áður lýst sér sem pankynhneigðri.
Amandla er líklega þekktust fyrir hlutverk sitt sem Rue í The Hunger Games en þá var hún aðeins 14 ára gömul. Eftir það hlutverk hefur ferill leikkonunnar ungu verið farsæll en hún fór t.a.m. með aðalhlutverkið í myndinni Everything, Everything á síðasta ári.
Amandla greindi frá því að hún væri komin út úr skápnum með því að setja inn mynd á Instagram undir yfirskriftinni „Out and proud“.
https://www.instagram.com/p/BkGrwx4hlyJ/?taken-by=amandlastenberg