Söngkonan Lily Allen hefur fullyrt að sé ekkert pláss fyrir flóttafólk í lúxusíbúðinni sinni í Notting Hill, þrátt fyrir að hafa áður sagst vera meira en til í að veita hælisleitendum aðstoð.
„Engin spurning. Hver myndi ekki gera það?“ sagði hún í samtali við BBC árið 2016 þegar hún var spurð því hvort hún myndi opna fyrir sínar dyr, en umræðan snérist um þrettán ára pilt frá Afghanistan sem hætti lífi sínu til þess að komast í gegnum landamæri Bretlands.
Allen varð harðlega gagnrýnd þegar hún bað flóttafólki í Calais afsökunar fyrir hönd bresku þjóðarinnar og hét því í kjölfarið að hýsa hælisleitandi barn, skyldi koma að því. „Ég held að allir myndu gera hið sama,“ bætti hún við.
Allen, sem er tveggja barna móðir, var spurð um helgina af miðlinum Express hversu marga flóttamenn hún hefur hýst síðan ummælin féllu.
„Enga,” svaraði hún. „Ef ég ætti mjög stórt hús myndi ég gera það, en öll mín svefnherbergi eru troðfull af börnum nú þegar.“