Kærasta Bents, hin stórskemmtilega Dóra Jóhannsdóttir, leikkona og einn höfunda áramótaskaupsins í fyrra, var að sjálfsögðu á staðnum til að fagna með sínum manni. Meðal annarra gesta voru Blaz Roca og Dóra Takefusa. Afmælið var haldið á Húrra og bauð Bent gestum sínum í karaókí. Í næsta húsi, á Sæta svíninu, var Þórunn Antonía, söngkona og fyrrverandi kærasta Bents, með partý-karaókí sem er alltaf á miðvikudögum.