Ebba Guðný Guðmundsdóttir, höfundur, bloggari, kennari og matarunnandi með meiru, deildi frétt Bleikt á Facebook-síðu sinni þar sem vitnað er í orð söngvarans Justin Bieber um að líf fræga fólksins væri ekki allt sem það væri séð að mati söngvarans. Þessu er Ebba Guðný sammála og ritar hún: „…(Það) þarf að útskýra að fólk sem er frægt (eða á mikla peninga) er ekki betra en annað fólk eða fínna, flottara… þetta er bara venjulegt fólk.“
Í færslu Ebbu Guðnýjar segir að Bieber segi ekki margt en segi alveg nóg. „Ég held að það sé mjög snjallt að segja börnum/unglingum að líf þeirra frægu sé ekki betra en okkar hinna. Sumt virkar svo augljóst en samt þarf að segja það upphátt við börn. Ég held að það hafi verið John Travolta sem sagðist vera í frægðarfangelsi… og fannst það oft alveg lamandi.“
Ebba Guðný, sem sjálf er tveggja barna móðir, segir að í dag sé mikið um sýndarveruleika á samfélagsmiðlum og víðar, að það þurfi að hamra svona upplýsingar í börn og útskýra:
„Mér er minnisstætt er ég sagði eitt sinn er ég var lítil við mömmu að mig langaði að vera prinsessa, mamma var fljót að svara og sagði: ,,Það held ég að sé svakalega leiðinlegt Ebba, þú átt þig þá ekki lengur sjálf og þarft að vera upp á punt og gera eins og þér er sagt flesta daga.“ .. eitthvað svona .. man ekki alveg hvernig hún útskýrði en meiningin sat í mér og ég steinhætti að hugsa um að það væri gaman að vera prinsessa.“
Í lok færslunnar segir Ebba að líf þeirra sem eru þakklátir og taki eftir því góða í kringum sig sé, að hún hugsi, undantekningalaust afar gott.
Hann hefur ekki mörg orð um þetta hann Bieber en segir alveg nóg. Ég held að það sé mjög snjallt að segja…
Posted by Ebba Gudny Gudmundsdottir on 10. maí 2018