Söngkonan Ariana Grande er hætt með kærastanum sínum, rapparanum Mac Miller eftir tæplega tveggja ára samband. Samkvæmt slúðurpressu E! Online lauk sambandinu á friðsælum nótum og segjast báðilar aðilar vera góðir vinir, að ástin hafi fjarað út sökum mikilla anna og gafst lítill tími fyrir rómantíkina á síðustu misserum.
Þau Grande og Miller sáust síðast saman í eftirpartíi hjá Madonnu í kringum Óskarsverðlaunin fyrr á árinu en orðrómur hefur verið uppi um breytta sambandsstöðu frá því söngkonan mætti ein á Met Gala kvöldið í vikunni.
Parið hefur farið víðan völl á undanförnum árum og mikið spreytt sig saman á sviði. Einnig unnu þau saman að tónlistarmyndbandinu My Favorite Part og gáfu út lagið The Way árið 2013, áður en þau hófu samband þremur árum síðar.
Sjá má og heyra lagið The Way hér að neðan.