Guðmundur Karl Karlsson lenti í þeim ömurlegu aðstæðum í gær að hundurinn hans var bitinn í annað skiptið á hundasvæðinu í Garðabæ.
„Að mínu mati þá erum við að taka skref í menningarþrepi, meðal annars með því að leyfa hundana í strætó og kaffihús. En ef við getum ekki treyst eigendum með hundana sína á hundasvæðum, þá er erfitt að treysta þeim með þá í strætó,“
Segir Guðmundur í samtali við blaðamann.
Á sama augnabliki og hundur Guðmundar stökk út úr bílnum á hundasvæðinu þá kom að honum annar hundur sem beit hann.
„Ef hundurinn þinn er urrandi og bítandi aðra hunda, þá á hann ekki erindi á opin hundasvæði nema með múl. Hér er ekki við hunda að sakast, heldur eigendur. Við vitum öll sem þekkjum okkar dýr, hvort þau kunni og geta leikið við aðra hunda fallega eða ekki. Ég tala nú ekki um fólk og börn. Áður en hundur bítur, þá urrar hann og það er ekki í lagi ef hundur urrar á aðra hunda eða menn. Þau merki ber að taka alvarlega.“
Guðmundur biður því fólk að taka ráðstafanir og sýna tillitsemi á útivistarsvæðum dýra.
„Við þurfum að taka þetta skref hratt og örugglega til þess að forðast frekari árekstra á milli manna og hunda.“