Það hefur verið langþráður draumur systranna Kate (36) og Pippu Middleton (34) að vera ófrískar á sama tíma. Þetta segir ótilgreindur fjölskyldumeðlimur í samtali við fréttamiðilinn Us Weekly en nú virðist sem að draumur þeirra hafi ræst.
Sagt er að eldri systirin hafi verið sú fyrsta til að heyra fréttirnar frá Pippu eftir fyrstu skoðun sína en þetta er hennar fyrsta barn með eiginmanninum James Matthews (42).
Samkvæmt tilkynningu frá Kensington-höll eiga þau Kate og Vilhjálmur bretaprins von á sínu þriðja barni á hverri stundu. Kate er sögð vera nýkomin með hríðir og hefur verið flutt á St. Mary spítalann í Paddington en þar var hún líka þegar hún fæddi erfingjana Georg prins og Karlottu prinsessu.
Þau Pippa og James giftu sig í maí í fyrra og eru sögð himinlifandi yfir tíðindunum.