Par sem var í mikilli ofþyngd höfðu miklar áhyggjur af því að geta ekki eignast barn saman og tóku því ákvörðun um að létta sig saman.
Lexi og Danny eyddu meiri tíma í að borða óhollan mat heldur en að hreyfa sig og heildarþyngd þeirra var orðin rúm 350 kíló.
Parið setti sér nýjársheiti um að léttast saman og fóru að borða hollt og hreyfa sig.
Árangur þeirra er ótrúlegur en þau misstu samtals 175 kíló á rúmlega einu ári.