Raunveruleikastjarnan umdeilda Kim Kardashian er ekki hrædd við að bera líkama sinn fyrir framan myndavélarnar. Margir hafa hneykslast á myndunum sem stjarnan deilir með fylgjendum sínum á Instagram en Kim er þó sama um allar neikvæðnisraddir og heldur áfram að gera það sem hana langar til.
Nýjustu myndir Kim á samfélagsmiðlinum eru mjög djarfar og líklega eru margir sem muna setja út á hana fyrir þær. En Kim hefur birt þær óhikað og sýnir okkur með þeim hvað hún er í fanta góðu formi!