Hólmfríður Brynja Heimisdóttir skrifaði á dögunum opið bréf til stjúpföður síns þar sem hún þakkar honum fyrir að hafa verið til staðar fyrir sig þegar hún þurfti á því að halda. Bréfið er í senn einlæg og falleg lesning fyrir alla foreldra, hvort sem þeir eru stjúpforeldrar, fósturforeldrar eða blóðforeldrar.
Takk fyrir að hafa verið ávalt til staðar fyrir mig frá barnsaldri þó að þú hafir ekki verið skyldugur til þess, takk fyrir að fæða mig og klæða og takk fyrir að styðja mig í öllu því sem mér dettur í hug og að taka undir það með mér,
segir Hólmfríður í einlægri færslu á Narnia.
Hólmfríður þakkar stjúpföður sínum fyrir að hafa hugsað um sig líkt og hún væri hans eigin dóttir og fyrir stuðninginn sem hann hefur veitt henni í gegnum erfiða tíma.
Takk fyrir að hvetja mig áfram í lífinu og vilja mér fyrir bestu, takk fyrir að styðja mig í náminu og minna mig á hvað það er mikilvægt og takk fyrir að elska mig eins og þú gerir. Elsku Rúnar, takk fyrir að vera pabbi minn númer tvö.