Hún birti eina mynd á dag af sjálfri sér og/eða fjölskyldumeðlimum, sem gáfu til kynna hvernig jólamynd fjölskyldunnar myndi líta út. Jólamyndin sjálf birtist svo á jóladag 25. desember og vakti athygli að systir hennar, Kylie Jenner, var ekki á myndinni. Sögusagir herma að hún sé ófrísk að sínu fyrsta barni, en hvorki hún né aðrir fjölskyldumeðlimir hafa staðfest þær sögusagnir.
Og nú er Kim búin að eyða öllum myndunum út af Instagram. Jólamyndin er þó enn á Instagram systur hennar, Khloé Kardashian og móður þeirra, Kris Jenner.