Parið, Tobba Marinósdóttir, og Karl Sigurðsson, Baggalútur, telja nú niður dagana í að annað barn þeirra komi í heiminn. Von er á annarri dóttur eftir 15 daga, en fyrir eiga þau dótturina Regínu sem er fjögurra ára.
Líkt og verðandi foreldra er siður þá er búið að versla ýmsa muni handa barninu, þar á meðal þessa bleiku snuddu með textanum „Grenja?“, sem er nafn á lagi Baggalútsmanna ásamt Sölku Sól sem kom út í fyrra.
Tobba deilir mynd af snuddunni á Facebook-síðu sína við kæti vina sinna og ljóst að parið er orðið spennt eftir dótturinni.