Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir þingmaður og varaformaður Sjálfstæðisflokksins hendir gaman að því á Twitter að skrifstofa Alþingis fylgist vel með hjúskaparstöðu hennar.
Það er enginn sem fylgist betur með hjúskaparstöðu minni en skrifstofa Alþingis. Þrisvar á ári a.m.k. fæ ég nefnilega símtalið: „Sæl Áslaug, kemur þú með maka í [þingsetninguna, fullveldisboðið, þingveisluna]?“
— Áslaug Arna (@aslaugarna) September 10, 2018
Ein vinkona hennar spyr hvort hún sé viss, hvort það sé ekki frekar Marta María á Smartlandi Morgunblaðsins sem fylgist með. Svarar Áslaug Arna „Hún virðist bara tékka á þessu árlega,“ en Áslaug Arna hefur oftar en einu sinni verið á lista Smartlands yfir álitlegar einhleypar konur Íslands.
„Ég bauð nú ömmu með í fyrsta skipti, hún hristi upp í samkomunni með að tárast úr stolti þegar ég gekk út kirkjugólfið eftir guðsþjónustuna líkt og ég væri að gifta mig. Hún hefur kannski hugsað að það kæmi aldrei að því og þetta væri bara í staðinn fyrir það.“
Einn spyr hvort að skrifstofan reyni í kjölfarið að koma henni saman við einhvern. „Ég á sætan frænda sem væri svo obboslega til í að kíkja með þér…“ Annar leggur til að hún prófi að svara öðruvísi næst.