Tónlistarmaðurinn Friðrik Dór Jónsson opnaði sig um baráttuna við aukakílóin í útvarpsþættinum Brennslan á FM957 í morgun. Í spjalli við stjórnendur þáttarins, þá Kjartan Atla og Hjörvar fór Friðrik um víðan völl en hann mun flytja til útlanda á næsta ári. Þar ætlar hann að læra innanhús arkítekt.
Friðrik hefur verið duglegur í ræktinni að undanförnu og segist aðspurður vera búinn að koma sér í rosalegt stand. „Ég var að sjá töluna sjö sem fremstu tölu á vigtinni í fyrsta skipti síðan árið 2010,“ segir Friðrik.
Hann segir ástandið hafa verið verst í kringum síðustu áramót. „Ég var farinn að gæla við þriggja stafa tölu og orðinn 97 kíló. Ég var orðinn ógeðslega þungur,“ bætti Friðrik við en hann hefur undanfarna mánuði verið duglegur að lyfta með bróðir sínum.
„Við erum með lyftingafélagið Hrikinn. Það er svona lífstílsfélag, við spilum golf, lyftum lóðum og styðjum hvorn annan í lífsins ólgu sjó,“ Friðrik.
Í viðtalinu kom einnig fram að tónleikarnir í haust verði þeir síðustu í smá tíma en Friðrik stefnir á að flytja erlendis og setjast á skólabekk á næsta ári. Friðrik hafði áður stefnt á nám í innanhús arkítekt en frestaði því vegna tónlistarinnar. Þá er Friðrik með gráðu í viðskiptafræði en kveðst hafa lokið því námi fyrir móður sína. Meðfram tónleikunum mun Friðrik gefa út sína þriðju breiðskífu. Sú plata er væntanleg tæpri viku fyrir tónleikana sem verða í Kaplakrika þann 12. október.