Ragga Nagli er klínískur heilsusálfræðingur og einkaþjálfari. Á Facebook heldur hún úti vinsælli síðu þar sem hún birtir reglulega pistla um hreyfingu, mataræði og fleira. Í þessum fjallar hún um að það er engin ein útgáfa til af hreysti.
Þú getur verið grannur eða þybbinn.
Með sýnilega vöðva og heflaðan sixpakk.
Eða ávalar línur og mjúkan maga
?Þú getur æft 3x í viku eða 10x í viku
?Hamast eða tekið því meira rólega
?Æft í 30 mínútur eða 2 tíma
? Labbað á höndum eða bara gert lítinn kollhnís
?Þú getur deddað 30 kíló eða 300
?Þú getur borðað oft á dag eða einu sinni á dag.
?Þú getur borðað á 2ja, 4 tíma, 5 tíma, 7 tíma fresti.
?Þú getur talið kaloríur, mælt og vigtað, eða slumpað á skammta og farið eftir svengd og seddu.
?Þú getur æft Crossfit, ólympískar, kraftlyftingar, hlaup, hjól, zumba, línuskauta, Pilates, jóga,
Ekki bera þig saman við hvað aðrir gera.
Það er engin rétt eða röng hreysti.
Finndu það sem hentar þér, þínum líkama, þínum matarsmekk, þinni hreyfiþörf, þinni hitaeiningaþörf og þínum lífsstíl.
En umfram allt finndu það sem gefur þér gleði og ánægju.
Það drattast enginn lengi í hreyfingu sem vekur kvíða og vonleysi.
Vertu þín eigin útgáfa af hreysti.