Fyrir stuttu sögðum við frá því að fjölmiðlakonan Ellý Ármanns hygðist láta húðflúra á sig væng.
„Vængbrotin verið hef og er enn, helvítis hamingjan yfirgaf mig en ég veit hún mig uppi leitar. Langar mest að fljúga úr aðstæðum burt daglega en það er ekki í boði vængjalaus, týnda vænginn minn vinstri fæ loksins á mig varanlega húðflúraðan næstu helgi ef lukka leyfir,“ sagði Ellý þá á Instagramsíðu sinni þar sem hún póstaði jafnframt mynd af flúrinu sem hún hugðist fá sér.
Og í dag var fyrsta „session“ þegar Chip Baskin flúrari hjá Reykjavík Ink teiknaði á hana útlínur vængsins á hægri handlegg Ellýjar, fríhendis án þess að hika eða efast að sögn Ellýjar og þarf hún að mæta tvö skipti í viðbót til að fullkomna flúrið.
„Örninn kemur oftar en einu sinni og oftar en tvisvar til tals í Biblíunni. Örninn flytur ávallt skilaboð andans; Það eru tengsl mannsins við hið guðdómlega því örninn flýgur hærra en nokkur annar fugl og hefur því meiri yfirsýn en nokkuð annað vængjað dýr. Ef örninn birtist mönnum eru skilboðin skýr; frelsi og hugrekki fyrir viðkomandi til að takast á við framtíðina öflugri en nokkru sinni fyrr. Örninn er táknrænn fyrir mig að mörgu leyti. Fyrir mikilvægi, heiðarleika og sannfæringu hjartans,“ segir Ellý.