Á meðal afmælisbarna dagsins í dag er forseti Íslands, Guðni Thorlacius Jóhannesson en hann fagnar stórafmæli, 50 ára.
Á meðal þeirra sem óska honum til hamingju með daginn á Facebook er eiginkona hans, Eliza Reid, sem fagnar manni sínum með þessum orðum og mynd: „Þessi klári, fyndni, góði og jú fjallmyndalegi maður er 50 ára í dag. Ég er mjög stolt af honum sem fimm barna föður, syni, eiginmanni og forseta. Við fjölskyldan ætlum að fagna deginum eins og hann vill, eða með sem minnstri fyrirhöfn og látum. Að sjálfsögðu ætlum við svo að fylgjast með strákunum okkar í Rússlandi. Til hamingju með daginn elsku Guðni. Og ÁFRAM Ísland! (Myndin er tekin á síðustu öld þegar við vorum bæði í námi í Oxford háskóla.)“
Til hamingju með stórafmælið Guðni!