Elsa Bára Traustadóttir sálfræðingur skrifaði skemmtilega færslu á Facebooksíðu sína fyrr í vikunni: „Skrapp að sinna erindi í hádeginu og þegar ég kom í bílastæðahús var ég að vandræðast með að finna greiðsluvél og spurði næsta mann sem ég sá hvar hún væri. Sá hinn sami heilsaði mér innilega og sagði: „Djöfull er ég glaður að sjá þig, ég skulda þér alltaf 10.000 kall!“ um leið og hann rétti mér skælbrosandi peninginn sem hann hélt á. Með því skemmtilegra sem ég hef lent í á förnum vegi í bílastæðahúsum.“
Nokkrir vina Elsu Báru föluðust að sjálfsögðu eftir upplýsingum um hvar þetta bílastæðahús væri að finna, með von um að fá óuppgerðar skuldir greiddar þar.
„Kona à miđjum aldri þiggur greidslu frà manni à förnum vegi,“ lagði einn vinur Elsu Báru til sem fyrirsögn. Þegar blaðamaður DV sagðist vel geta orðið við því lagði Elsa Bára sjálf til fyrirsögnina og botnaði með „alveg á pari við klósettskandal George Michael hér um árið – miðað við höfðatölu!“.