Ásdís Rán Gunnarsdóttir athafnakona mætti til Sofiu í Búlgaríu ásamt dóttur sinni, Viktoríu Rán, miðvikudaginn 20. júní.
Póstuðu þær mæðgur myndum af sér á Facebook þar sem báðar eru komnar með bleikt hár, auk þess sem Ásdís Rán er sjálf klædd í bleikt. Skrifuðu nokkrir aðdáendur ísdrottningarnar athugasemdir við myndina og báðu hana um að halda í ljósa hárið. Líklegt er hins vegar að um filter á Instagram sé að ræða, enda þarf að finna sér eitthvað til að drepa tímann við á 15 klst. ferðalagi.