Hjónin Hafdís Björk Jónsdóttir tannlæknir og Jón Jónsson söngvari hafa fest kaup á glæsilegu einbýlishúsi að Lindarbraut 19 á Seltjarnarnesi.
Húsið sem var byggt árið 1950 er á tveimur hæðum og alls 231 fm að stærð með bílskúr. Húsið var allt tekið í gegn á einstaklega smekklegan og vandaðan hátt af fyrri eigendum Magnúsi Scheving og Ragnheiði Melsted.
Það er ljóst að engin leti var á Lindarbraut við endurbæturnar því húsið er stórglæsilegt bæði að innan og utan og ætti ekki að væsa um Hafdísi, Jón og börn þeirra á nýja heimilinu.
Ofangreindar myndir eru frá í mars síðastliðnum þegar eignin var auglýst til sölu.