Fræga fólkið bregður oft undir sig betri fætinum til útlanda, ýmist sér til skemmtunar eða vegna vinnu, eða bara bæði. Í Evrópu sást nýlega til:
Leikarinn Jóhann G. Jóhannsson er nú staddur í Helsinki í Finnlandi, en hann hefur átt velgengni að fagna á sviði, sjónvarpi og í kvikmyndum, nú síðast í hlutverki föðurins Tóta í Víti í Vestmannaeyjum sem gerð er eftir samnefndri bók Gunnars Helgasonar.