Stórsöngvarinn Justin Timberlake játaði að hann hafi sængað Kryddpíu þegar hann mætti ásamt gamla genginu úr hljómsveitinni *NSYNC í spjallþáttinn hjá Ellen DeGeneres nú á dögunum.
Ellen sló á létta strengi með fyrrum strákabandinu og ákvað að spila með þeim leikinn „Ég hef aldrei…“
Þegar upp kom setningin „Ég hef aldrei sofið hjá Kryddpíu“ réttu strákarnir allir upp hönd nema Justin. Hann sat stjarfur í smástund og átti erfitt með að ákveða sig með svar.
Ekkert nafn var gefið upp en ýmsar slúðursögur hafa áður tengt Timberlake við Barnakryddið Emmu Bunton. Talið er að þetta hafi verið þegar þau voru bæði einhleyp árið 2003 og þykir líklegt að þau hafi slegið sér upp saman þá.