Í byrjun febrúar ákváðum við Sæþór að fara loksins í það að mála nokkra veggi í eldhúsinu og stofunni í lit og flikka aðeins uppá með aukahlutum, blómum og slíku. Við erum núna búin að búa í húsinu okkar í 18 mánuði ca og búin að vera á leiðini að henda okkur í þetta verkefni nánast síðan við fluttum !
Ég byrjaði á því að velja mér lit á málningunni og fór í Slippfélagið og valdi mér nokkrar prufur. Ég var alveg búin að ákveða að mála í gráum lit en hitti svo æðislegan starfsmann sem leiðbeindi mér mjög vel og kom svo bara óvart út með nokkrar prufur í bláum tónum fyrir stofuna. Ég sé sko alls ekki eftir því þar sem blár tónar mjög fallega við mitt litaþema í stofunni. Við vorum mjög efins um bláa litinn og fannst allar prufurnar svo dökkar en ákváðum á endanum að vera svolítið djörf og velja lit sem okkur fannst aðeins of dökkur. Við völdum litinn Æskublár og þegar hann er kominn á vegginn er hann sko ekki neitt dökkur og bara ótrúlega fallegur og tónar svo vel við gráa, hvíta og svarta litaþemað sem er í gangi í húsinu hjá okkur. Ég mæli algjörlega með því að taka frekar meiri en minni áhættu við val á lit. Það versta sem getur gert er að þú þarft að mála aftur yfir vegginn ef þú ert ósáttur. Ég elska þennan lit og allir sem koma í heimsókn tala um hvað hann kemur fallega út hjá okkur.
Í eldhúsinu vorum við reyndar búin að mála einn vegg í litnum Rökgrå frá Slippfélaginu og mér finnst hann svo hlýr og fallegur að við ákváðum að taka 3 veggi í eldhúsinu með þessum saman lit. Ég er líka með þennan gráa lit á einum vegg inní svefnherbergi hjá mér og er mikið að spá í að mála alla veggina þar í þessum lit.
Ég ætla að láta fylgja mjög góða punkta varðandi málningarvinnu sem ég fékk:
Þegar við vorum búin að mála fannst mér algjört möst að flikka aðeins meira uppá stofuna með fallegum fylgihlutum. Ég setti stóran hringlaga spegil á vegginn við forstofuna sem kemur alveg frábærlega vel út og gerir ótrúlega mikið – Ég mæli klárlega með hringspegli ef þið viljið poppa upp og breyta til.
Ég gerði líka heimilið mun grænna en það var og bætti við alveg 4 mismunandi plöntum sem er risaskref fyrir mig sem hefur aldrei verið með neitt grænt.
Það er alveg magnað hvað smávægilegar breytingar eins og málning, nýir fylgirhlutir og nokkrar plöntur geta gert og mér finnst heimilið mitt vera orðið miklu meira kósý og flott eftir þessar breytingar. Þetta tók okkur bara nokkra daga að framkvæma, kostaði lítið og við erum alveg í skýjunum yfir þessu.