Líney María Hjálmarsdóttir býr í Skagafirði með hundinn sinn Pollý og köttinn Skralla sem eiga einstaklega fallegt vinasamband.
Þau leita að hvort öðru og leika sér saman alla daga, hvort sem er úti eða inni. Pollý er 11 mánaða gömul og Skralli er 9 mánaða en hann kom til okkar sem kettlingur þegar hann var bara 2 mánaða gamall. Sambandið þeirra er alveg einstakt,
segir Líney í samtali við Bleikt.
Líney gaf Bleikt góðfúslegt leyfi til þess að birta þetta ofurkrúttlega myndband af dýrunum hennar tveimur: