Að fara í fótsnyrtingu reglulega getur verið virkilega notalegt og jafnvel nauðsynlegt fyrir suma. Flestum finnst huggulegt að fá að sitja í stólnum á meðan verið er að dekra við þá.
Fyrir ekkert rosalega löngu síðan komst í tísku svokallað Fish Spa.
Fish Spa er fótsnyrtingar aðferð þar sem viðskiptavinurinn stingur fótunum ofan í fiskabúr hjá sérstakri fiskitegund sem sækist í að borða dauða húð viðkomandi og hreinsa þannig fæturna vel.
Fyrir suma hljómar þessi aðferð áhugaverð og spennandi, en fyrir aðra hljómar hún kjánalega, skringilega eða jafnvel hryllilega.
Myndband af konu sem fór í Fish Spa meðferð á dögunum hefur nú gengið eins og eldur um sinu á samfélagsmiðlum og ekki að ástæðulausu.
Aumingja konan virðist upplifa allan tilfinningaskalann þar sem hún situr og reynir að njóta fótsnyrtingarinnar.