Kristín Pétursdóttir leikkona og Brynjólfur Löve Mogensson Snapcat stjarna eiga von á sínu fyrsta barni saman í ágúst.
Kristín hefur starfað sem flugfreyja undanfarna mánuði en hún hefur meðal annars leikið í bíómyndunum Órói og Fólkið í Blokkinni.
Ég er gengin fjórtán vikur og fjóra daga og við erum mjög spennt. Ég var að vísu mjög veik fyrstu 12 vikurnar en það er allt að koma,
segir Kristín í samtali við Bleikt.
Brynjólf þekkja flestir undir nafninu Binni Löve en hann gerði garðinn frægan á Snapchat. Í dag starfar Brynjólfur sem rekstrarstjóri pizzustaðarins Blackbox Pizzeria.
Við óskum þessum verðandi foreldrum innilega til hamingju.