Stefnumótamenning á Íslandi hefur aldeilis breyst á síðustu árum með tilkomu samfélagsmiðla og smáforrita. Hér áður fyrr bauð fólk þeim sem þau höfðu áhuga á, á stefnumót og kynntist fólk almennilega þar. Nú þarf ekki nema eina stroku til hægri til þess að lýsa áhuga og þá getur fólk farið að spjalla saman samstundis og komist að því hvort þau eigi samleið eða ekki.
Bleikt.is tók saman lista af efnilegum og klárum konum sem eru á lausu:
Manúelu ættu flestir að þekkja. Sigraði hún keppnina ungfrú Reykjavík og ungfrú Ísland árið 2002 og hefur síðan þá verið mikið í sviðsljósinu.
Þórunn Antonía er ein af hæfileikaríkustu söngkonum landsins. Einnig er hún þekkt fyrir að stofna Facebook síðuna Góða systir sem hefur yfir 50 þúsund meðlimi. Þórunn stofnaði síðuna til þess að dreifa áfram jákvæðni og hvatningu fyrir Íslenskar konur.
Auður Ómarsdóttir er framúrskarandi myndlistarkona sem er þekkt fyrir fegurð sína og þokka.
Ragga er lærður hjúkrunarfræðingur og starfar hún við geðhjúkrun hjá Tækniskólanum. Ragga er einnig sérstaklega vel að sér þegar kemur að vitneskju um kynlíf og tekur hún á móti einstaklingum og pörum í viðtöl. Ragga skrifar mikið af greinum um kynlíf og fjallar um það opinberlega.
Diljá Ámundadóttir er upplýsingafulltrúi Hörpunnar ásamt því að sitja í Mannréttindaráði Reykjavíkurborgar og Heilbrigðisnefndar.
Lína Birgitta er ein af þekktustu samfélagsmiðlastjörnum landsins. Lína er einnig mikill frumkvöðull og á hún bæði sína eigin úra línu og íþróttafatalínu.
Karítas Harpa er ein af efnilegustu söngkonum landsins. Karítas flaug upp á sjónarsviðið þegar hún sigraði aðra þáttaröð The Voice Iceland í byrjun árs 2017. Karítas ásamt félögum sínum í Fókus hópnum eru komin áfram í úrslit söngvakeppni sjónvarpsins sem er þann 3. mars næstkomandi.
Harpa er sérstaklega hæfileikarík listakona og fatahönnuður sem hannar undir merkinu MYRKA.
Áslaug hefur verið alþingismaður Reykjavíkurkjördæmis norður með Sjálfstæðisflokknum síðan árið 2016.