Að eiga börn er ekki auðvelt enda þarf að hafa auga með þeim allan sólarhringinn og því getur verið erfitt að koma öðrum hlutum í verk. Feður hafa því tekið sig saman og deilt myndum af fyndnum og furðulegum ráðum til þess að auðvelda sér lífið í uppeldinu.
Indy greinir frá því að feður hafi tekið sig saman undir myllumerkinu #dadhacks á samskiptamiðlinum Instagram og deila þar myndum af því hvernig þeir hafa fundið lausnir til þess að auðvelda sér lífið.