Áttunda og jafnframt síðasta þáttaröðin byrjaði í tökum 23. október 2017 og verður hún sýnd árið 2019. Tökur fyrir fjórar þáttaraðir hafa farið fram hér á landi, fyrir þáttaraðir tvö, þrjú, fjögur og sjö. Tökur fyrir þá síðustu munu einnig fara fram hér, í febrúar og er búist við því að tökurnar standi yfir í nokkra daga.
Marie Claire tók saman yfirlit yfir nokkra tökustaði sem eru jafnfallegir í raunveruleikanum og í þáttunum og það kemur ekki á óvart að Ísland á þar nokkra fulltrúa, Einstaklega góð landkynning.