Hann hefur meðal annars breytt fyrirsætum sínum í ofurhetjur með aðstoð mjólkurinnar.
Í sínu nýjasta verkefni var hann í samstarfi við Aurum Light, sjö fyrirsætur auk förðunar- og hárteymis til að skapa „Milky Pinups 2018“ dagatalið.
„Ég er mikill kvikmyndaáhugamaður og því voru fleiri hugmyndir í kollinum en komust á 12 mynda dagatal. Það var erfitt að velja en þessar urðu á endanum fyrir valinu. Sumir karakterarnir eru mjög vinsælir eða myndirnar sem þær eru í og því augljósar, meðan aðrar eru það ekki. Allir búningar eru mjólk, í mörgum tilvikum lituð með matarlit. Við helltum fullt af mjólk á fyrirsæturnar, sem voru frábærar á meðan á tökum stóð,“ segir Jaroslav.