Eftir langa bið hefur ABC sjónvarpsstöðin gefið út hver verður Bachelor næstu seríu raunveruþáttanna vinsælu. Það er ökuþórinn, Arie Luyendyk Jr., 35 ára. Hann var annar af tveimur sem stóðu eftir sem vonbiðlar í áttundu seríu The Bachelorette árið 2012.
Í viðtali við Goo Morning America, sagðist Arie hlakka til og vera með „opinn huga, opið hjarta.“
Bachelor, 22 sería, byrjar 1. janúar 2018.
https://www.youtube.com/watch?v=qWJFIop8kXA