Í gær hófst átakið Á allra vörum 2017 með fjölmennu boði í Silfurbergi í Hörpu. Í ár styrkir Á allra vörum Kvennaathvarfið og uppbyggingarstarf þess. Átakið snýst um landssöfnun fyrir uppbyggingu á íbúðahúsnæði fyrir konur og börn þeirra, sem eiga ekki í öruggt skjól að venda að lokinni dvöl í Kvennaathvarfinu.
[ref]http://www.dv.is/frettir/2017/9/6/gerum-von-ad-veruleika/[/ref]