Samband Harry prins og Meghan Markle aðalleikkonu þáttanna Suits hefur verið mikið á milli tanna fólks síðan þau fóru að sjást saman, en parið hefur lítið viljað tjá sig við fjölmiðla. Markle prýddi nýjustu forsíðu Vanity Fair blaðsins og leysti loksins frá skjóðunni í einlægu viðtali.
„Við erum í sambandi og við erum ástfangin. Ég geri mér grein fyrir því að einn daginn munum við þurfa að koma fram og kynna okkur saman en einmitt núna er þetta okkar tími og ég vona að fólk skilji það. Við erum hamingjusöm,“ segir Markle og vonast til þess að fá örlítinn frið með sínum heittelskaða, en fjölmiðlar hafa elt þau á röndum síðustu mánuði. Þrátt fyrir að Markle lesi ekkert sem birtist í fjölmiðlum sjálf þá viðurkennir hún að það geti tekið á að fá svona mikla athygli.
„Þetta er áskorun, og kemur í bylgjum – sumir dagar eru erfiðari en aðrir. En ég hef mikið stuðningsnet í kringum mig og að sjálfsögðu stuðning kærasta míns.“
Markle segir að þau séu virkilega hamingjusöm og ástfangin og að þau hafi náð að fara leynt með sambandið fyrstu sex mánuði sambandsins áður en það komst í fréttirnar.
„Það hefur ekkert breyst hvað mig varðar, ég er enn þá sama manneskja og ég hef alltaf verið og ég hef aldrei skilgreint sjálfa mig eftir þeim samböndum sem ég hef verið í.“