Margar konur kannast við það að þurfa að draga kallana með sér í IKEA, oft við dræmar undirtektir. Kærasta þessa manns mun líklega hugsa sig tvisvar sinnum um áður en hún biður hann um að koma með sér aftur en kærasti hennar tók upp á því að ganga á eftir henni og taka upp myndband af viðbrögðum hennar meðan hann stríddi henni með nöfnum á IKEA vörum.
Myndbandið er sprenghlægilegt og kærastinn hefur líklega nælt sér í frípassa á IKEA ferðir í framtíðinni.