Einstaklingar með eigin fyrirtæki koma þeim á framfæri á mismunandi hátt við væntanlega viðskiptavini. Sumir kaupa prentauglýsingar, aðrir vefauglýsingar, sumir kynningar. En hann Steve Abernathy sem á tannlæknastofu í Jonesboro, Arkansas í Bandaríkjunum gerði eitthvað alveg nýtt. Hann klippti sjálfan sig inn í Star Wars.
Í auglýsingunni útskýrir hann aðferðina við að nota laser við rótarfyllingar. Og viðbrögðin hafa ekki látið á sér standa, sumir eru yfir sig hrifnir af auglýsingunni, meðan aðrir velta fyrir sér hvort að þetta sé lögleg auglýsing hjá Abernathy. En hann allavega vakti athygli á sér.