Arna Ýr Jónsdóttir var valin Miss Universe Iceland 2017, en keppnin fór fram í Gamla Bíói í gær.
Arna Ýr vann Ungfrú Ísland árið 2015 og er því vön fegurðarsamkeppnum og því sem þeim fylgir. Hún mun fara fyrir hönd Íslands í keppnina Miss Universe, sem haldin verður í nóvember næstkomandi.