Erna Gísladóttir eigandi Snyrtistofunnar á Garðatorgi og annað starfsfólk stofunnar hélt partý í vikunni í tilefni af stækkun stofunnar. Aðstaðan fyrir viðskiptavini og starfsfólk hefur verið bætt og því hægt að láta dekra við sig í nýrri og endurbættri snyrtistofu.
Boðið var upp á léttar veitingar, tilboð og kaupauka. Fjöldinn allur af góðum gestum mætti og fagnaði með Ernu og starfsfólki hennar.