Rebecca Grace, kom sá og sigraði þegar hún mætti í áheyrnarprufur X Factor á laugardaginn. Eftir frammistöðuna hefur Grace verið kölluð „hin nýja Adele,“ þrátt fyrir að lagið sem hún söng hafi verið lag Kelly Clarkson, Piece by Piece, en Clarkson er sigurvegari fyrstu American Idol keppninnar árið 2002.
Grace er tvítug og er frá Rainham í Essex og eftir að hafa verið lofuð í hástert af dómurunum fjórum, fékk hún fjögur já og fer því áfram í svokallað „bootcamp“ keppninnar.