Smith hefur að mestu haldið sig utan sviðsljóssins eftir að hann vann Óskar í fyrra fyrir besta lag, Writing´s on the Wall, úr Bondmyndinni Spectre.
https://www.youtube.com/watch?time_continue=3&v=AX8-YzMKZhQ
Lagið fjallar um Smith sjálfan og samband sem hann var í, en von er á nýrri plötu frá honum fyrir jól. „Mér finnst ég endurnýjaður og ég er með svo margar sögur sem ég get ekki beðið eftir að segja ykkur,“ sagði Smith á Instagram fyrr í þessum mánuði. „Biðin er næstum á enda, ég er bæði hræddur og spenntur. Ég hef sett hjarta mitt og sál í þessa plötu.“