Samkvæmt rannsókn sem náði til rúmlega 15.500 karlmanna víðs vegar um heiminn er meðallengd getnaðarlims í fullri reisn rétt rúmlega 13 sentímetrar. Í sömu rannsókn tókst að kveða í kútinn mýtuna um að samband sé á milli fótastærðar og lengdar getnaðarlims.
Til að komast að niðurstöðunni safnaði hópur breskra vísindamanna saman upplýsingum frá heilbrigðisstarfsmönnum sem byggjast á stöðluðum mæliaðferðum til að finna út meðallengd og meðalþykkt getnaðarlima. Vefsíðan vinsæla I Fucking Love Science greinir frá þessu.
Fór breski hópurinn í gegnum mælingar úr 20 mismunandi rannsóknum, sem náðu til 15.521 karlmanns og ættu niðurstöðurnar að gleðja einhverja karlmenn sem hafa áhyggjur af slíku.
Í ljós kom að linur getnaðarlimur er að meðaltali 9,16 sentímetrar að lengd á meðan meðallengd typpis í fullri reisn er 13,12 sentímetrar. Er þá verið að tala um mælingu sem nær frá lífbeini fram að efsta hluta kóngsins.
Linur limur er að meðaltali 9,31 sentímetri í ummál en ummál lims í fullri reisn er að meðaltali 11,66 sentímetrar.
Þá kom í ljós að typpi aðeins fimm karlmanna af hverjum hundrað er lengra en 16 sentímetrar í fullri reisn.
Þegar skoðað var hvort fylgni væri á milli typpisstærðar og annarra líkamlegra þátta eins og stærðar á eistum, þyngdar eða fótastærðar fannst lítið sem ekkert samband.
Tekið er fram í niðurstöðum að þó að engar vísbendingar hafi verið um samband milli kynþáttar og typpislengdar þá sé ekki hægt að draga ályktanir af því þar sem meirihluti mælinganna var gerður á hvítum karlmönnum.
Hægt er að lesa rannsóknina í heild sinni hér.
Birtist fyrst í DV.