VMA hátíð tónlistarstöðvarinnar MTV átti sér stað í gærkvöldi. MTV hefur tekið út kynjaskiptingu í bæði bíómynda og sjónvarpsþátta verðlaunaafhendingum og var þessi hátíð engin undantekning á því.
Kendrick Lamar bar sigur úr bítum með tónlistarmyndband ársins við lagið „Humble“. Listamaður ársins var engin annar en Ed Sheeran og besti nýjasti listamaðurinn er Khalid. Lag sumarsins 2017 er „XO Tour Llif3“ með Lil Uzi Vert og besta samvinna listamanna fengu þau Taylor Swift og Zayn Malik fyrir lagið „ I don´t wanna live forever“.
Það má segja að Kendrick Lamar hafi átt kvöldið þar sem hann vann ekki einungis tónlistarmyndband ársins heldur sigraði myndband hans einnig flokkana besta kvikmyndatakan, leikstjórn, listræn stjórnun og sjónræn áhrif.
Hér fyrir neðan má síðan sjá hluta af tísku kvöldsins